Træna ræsfundur

Skrifað 7/09/2012

Ístak hefur náð samningum við Kystværket í Noregi um framkvæmdir við dýpkun hafnar og byggingu grjótgarða i Træna í Nordland fylke. Samningsupphæð eru um 2 milljarðar króna.

Træna er 400 manna bær á lítilli eyju við heimskautsbaug í um 2,5 tíma siglingu frá Sandnessjøen.

Verktímabil er fram til júli 2014 en Ístak reiknar með að ljúka verkinu fyrir jól 2013.

Staðarstjóri Ístaks er Þorgils Arason. Framkvæmdir hefjast í lok sepetember en núna er verið að standsetja og yfirfara búnað.

Myndirnar sýna fulltrúa Ístaks, Kystverksins og Træna sveitarfélagsins á ræsfundinum. Á honum var farið yfir framkvæmdina og áhrif hennar á nærsamfélagið.

This entry was posted in Uncategorized. Bookmark the permalink.