Fyrstu árin
Fyrstu verkefni ÍSTAKS eftir stofnun árið 1970 voru við miðlunarframkvæmdir við Þórisvatn, svokallaða Vatnsfellsveitu og stækkun Búrfellsvirkjunar. Þá tók við tímabil þegar vegagerð var ríkur þáttur. Byrjað var á lagningu hringvegarins með bundnu slitlagi árið 1971, en fram að þeim tíma var þessi aðal þjóðvegur okkar einungis malarvegur, ef undan eru skyldir örfáir kílómetrar við Reykjavík og Akureyri.
Nokkru síðar hófust svo framkvæmdir við stækkun hafnar í Þorlákshöfn, sem var gerð í framhaldi af eldgosinu 1973 á Heimaey, þegar tvísýnt þótti um framtíð hafnar og útgerðar
frá Vestmannaeyjum.
Öll þessi verk, Búrfellsvirkjun, fyrstu áfangar hringvegarins og Þorlákshöfn, voru byggð fyrir lánsfé frá Alþjóðabankanum í Washington. Alþjóðabankinn gerir afar strangar kröfur um framkvæmdaeftirlit og gæðaeftirlit á þeim verkum sem hann fjármagnar. Sá reynsluskóli sem það var að vinna fyrir Alþjóðabankann hefur reynst ÍSTAKI gott veganesti við aðrar framkvæmdir síðar.
