ENGLISH
Engjateig 7  ::  105 Reykjavík  ::  Sími 530 2700  ::  Fax 530 2724  ::  Netfang  istak@istak.is
Heim  ::  Veftré  ::  Fyrirspurnir  ::  ENGLISH Prentvæn útgáfa
Leita
Fyrstu árin
Fyrstu verkefni ÍSTAKS eftir stofnun árið
1970 voru við miðlunarframkvæmdir við
Þórisvatn, svokallaða Vatnsfellsveitu og
stækkun Búrfellsvirkjunar.
Þá tók við tímabil þegar vegagerð var ríkur
þáttur. Byrjað var á lagningu hringvegarins
með bundnu slitlagi árið 1971, en fram að
þeim tíma var þessi aðal þjóðvegur okkar
einungis malarvegur, ef undan eru skyldir
örfáir kílómetrar við Reykjavík og Akureyri.

Nokkru síðar hófust svo framkvæmdir
við stækkun hafnar í Þorlákshöfn, sem var
gerð í framhaldi af eldgosinu 1973 á Heimaey,
þegar tvísýnt þótti um framtíð hafnar og útgerðar
frá Vestmannaeyjum.

Öll þessi verk, Búrfellsvirkjun, fyrstu áfangar
hringvegarins og Þorlákshöfn, voru byggð
fyrir lánsfé frá Alþjóðabankanum í Washington.
Alþjóðabankinn gerir afar strangar kröfur um
framkvæmdaeftirlit og gæðaeftirlit á þeim verkum
sem hann fjármagnar. Sá reynsluskóli sem það
var að vinna fyrir Alþjóðabankann hefur reynst
ÍSTAKI gott veganesti við aðrar framkvæmdir síðar.

   
ENGLISH  ::  Veftré  ::  Fyrirspurnir Heim  ::  Til baka  ::  Upp