ENGLISH
Engjateig 7  ::  105 Reykjavík  ::  Sími 530 2700  ::  Fax 530 2724  ::  Netfang  istak@istak.is
Heim  ::  Veftré  ::  Fyrirspurnir  ::  ENGLISH Prentvæn útgáfa
Leita
Gæðastjórnun
Ístak vinnur að innleiðingu gæðakerfis sem tekur mið af staðlinum ISO 9001. Kerfið er byggt upp og starfrækt með þeim hætti að það sé tækt til vottunar þegar ákvörðun verður tekin um slíkt. Í dag er unnið eftir kerfinu og er stöðugt verið að bæta vinnuferla innanhús.

Fyrir hvert verk er útbúið gæðaskipulag sem tekur mið af kröfum samnings við verkkaupa sem og kröfum Ístaks. Gæðaskipulag verks skilgreinir samskiptaferla milli verkkaupa og verktaka, skjalavörslu og dreifingu á verkstað.
Einnig er gefin út gæðastýringaráætlun fyrir verkið. Gæðastýringaráætlunin veitir starfsmönnum betri yfirsýn yfir þau atriði sem þarf að hafa sérstakt eftirlit með eða gera prófanir á. Gæðastýringaráætlunin nær til allra verkþátta án tillits til hvort þeir eru framkvæmdir af aðal- eða undirverktaka.

Með innleiðingu gæðastjórnunarkerfis er Ístak að styrkja stöðu sína í fremstu röð framsækinna verktakafyrirtækja, ásamt því að uppfylla metnaðarfullar kröfur sem gilda víða á hinum alþjóðlega markaði sem Ístak er hluti af.
ENGLISH  ::  Veftré  ::  Fyrirspurnir Heim  ::  Til baka  ::  Upp