ENGLISH
Engjateig 7  ::  105 Reykjavík  ::  Sími 530 2700  ::  Fax 530 2724  ::  Netfang  istak@istak.is
Heim  ::  Veftré  ::  Fyrirspurnir  ::  ENGLISH Prentvæn útgáfa
Leita
Fréttir
21.01.2010
Undirbúningur framkvæmda á Jamaica
  FLEIRI MYNDIR
Undirbúningur að verkefni Ístaks á Jamaica er nú í fullum gangi. 6 starfsmenn vinna að undirbúningi framkvæmdanna þar og 3 í Florida. Samtals átta tæknimenn og einn verkstjóri. Hönnun verksins fer fram í Florida, hönnunarstýring og efnisútvegun. Á Jamaica er hins vegar unnið að undirbúningi framkvæmdanna sem eru á NV strönd eyjunnar. Þar er í byggingu höfn fyrir stór skemmtiferðaskip í bænum Falmouth. Ístak vinnur að þessu verki í samvinnu við Pihl, Danmörku, sem sér um byggingu hafnarinnar.

Í verkþætti Pihl er niðurrekstur á stálþili, dýpkun og fyllingar á efni inn fyrir stálþil. Unnið er með stórum tækjum að þessu, en einnig kemur mannshöndin við sögu, en við verkið starfa nú m.a. um 60 kafarar. Verkefni þeirra er að fjarlægja kórala á hafsbotni á hafnarsvæðinu þar sem dýpka þarf og leggja þá niður á ný annars staðar. Þetta er gert af náttúruverndarsjónarmiðum til þess að vernda lífríkið á hafsbotni. Nú í janúar náðist sá áfangi í hafnargerðinni að reka niður síðustu plötuna í stálþilinu.

Verkþáttur Ístaks er bygging 20 húsa á hafnarsvæðinu sem er þorp frá 19 öld . Þarna koma í land farþegar af stærstu skemmtiferðaskipum heims frá Royal Carribean Cruises, sem er verkkaupi Ístaks. Ístaksmennirnir hér á svæðinu vinna að því að koma þessum framkvæmdum af stað, en reiknað er með að framkvæmdir Ístaks geti hafist í marsmánuði. Unnið er að skipulagningu framkvæmdanna, umsóknum um byggingarleyfi, innkaupum og samningagerð við ýmsa undirverktaka sem koma munu að verkinu. Ráðgert er að yfir 20 stjórnendur Ístaks komi til með að taka þátt í verkinu, en innfæddir munu annast byggingarvinnuna, ýmist undir beinni stjórn eða sem undirverktakar Ístaks. Björn verkstjóri tók þó að sér að steypa stoðvegg fyrir Pihl svona til að koma sér í gírinn og má sjá árangurinn á meðfylgjandi myndum.

Á meðfylgjandi myndum má sjá 1) framvarðasveit Ístaks sem stillti sér upp til myndatöku. Frá vinstri: Þráinn Sigurbjarnarson, Ingimar Ragnarsson, Brynjar Brjánsson, Björn Friðþjófsson, Árni Geir Sveinsson og Erlingur Leifsson 2) Björn verkstjóra stoltan við fyrstu veggjasteypuna sína. 3) Björn verkstjóra ásamt sínu steypugengi. 4) götumynd frá Falmouth, en húsin á Jamaica eru mörg mun skrautlegar máluð en við eigum að venjast.

03.01.2012 Viðburðarríkt ár
19.12.2011 Glussaball haldið í 14 skipti
07.12.2011 Verklok Hauge - Lonevåg
14.11.2011 Starfsmenn þjónustudeilda sækja Búðarháls heim
10.11.2011 Falmouth - valin höfn ársins

ENGLISH  ::  Veftré  ::  Fyrirspurnir Heim  ::  Til baka  ::  Upp