01.02.2010
Ístak reisir virkjun norður af Ilulissat á vesturströnd Grænlands
 |
 |
|
 |
 |
Stöðvarhús virkjunar við Sisimiut |
 |
Ístak reisir 22,5 MW virkjun í eyðifirði 50 km norðan við bæinn Ilulissat sem er norðan 69 breiddargráðu. Verkið er alverk sem merkir að Ístak sér um hönnun og byggingu virkjunarinnar. Í verkinu felst einnig að reisa háspennulínu frá virkjunarstaðnum að spennistöð sem Ístak byggir og liggur við bæinn. Einnig mun Ístak sjá um rekstur virkjunarinnar í ár eftir afhendingu. Verkkaupi er Nukissiorfiit sem er hliðstætt fyrirtæki á Grænlandi og Landsvirkjun hér á landi.
Raforkuvinnsla hefst skv. áætlun haustið 2012 þegar fyrsta vél verður gangsett. Reiknað er með að seinni tvær vélar virkjunarinnar verði gangsettar í sept. 2013 og virkjunin komist þar með í fullan rekstur. Kostnaður við verkið er áætlaður um 14 m.a. króna og er reiknað með 150 starfsmönnum þegar framkvæmdir standa sem hæst. Virkjunin er mjög sambærileg þeirri virkjun við Sisimiut sem Ístak afhendir sama verkaupa núna í vetur. Sisimiut er eilítið sunnar á vesturströnd Grænlands.
|