04.02.2010
Framkvæmdir við Náttúrufræðihús ganga vel
Framkvæmdir við nýtt Náttúrufræðihús í Urriðaholti í Garðabæ eru nú í fullum gangi. Byggingin er samtals um 3.500 m2. Hún skiptist m.a. í skrifstofur, fundarherbergi, rannsóknarstofur, bókasafn og skjalageymslur. Bílageymsla verður einnig í húsinu. Við byggingu og hönnun hússins hefur verið leitast við að leyfa náttúrunni að njóta sín sem best og var m.a. efnið sem kom upp úr grunninum mulið niður og notað í fyllingar undir og í kringum húsið.
Á haustmánuðum var Björn Friðþjófsson verkstjóri en hann er nú kominn til Jamaica og með lækkandi sól kom Gísli Kristófersson heim frá Grænlandi og tók við verkstjórninni. Mjög góður og samhentur hópur rúmlega tuttugu manna vinnur að byggingu hússins og hafa framkvæmdir gengið vel. Búið er að steypa upp kjallara, bílageymslu og veggi á fyrstu hæð og er nú unnið hörðum höndum að því að binda járn í plötu yfir fyrstu hæð og stefnt er að því að steypa hana fyrstu vikuna í febrúar. Húsið er að mestu leyti staðsteypt en holplötur eru yfir bílageymslu og að hluta yfir kjallara. Húsið er teiknað hjá Arkís og er óhætt að segja að arkitektúrinn fá að njóta sín í húsinu. Ekki er aðeins um að ræða kassaform með beinum veggjum og réttum hornum, heldur eru margar gerðir af hvössum og gleiðum hornum í veggjum hússins, sem gerir uppsláttinn fjölbreyttari en krefst mikillar vandvirkni. Talsvert er af sjónsteypuveggjum í húsinu. Mikil vinna hefur verið lögð í að gera mótin sem best úr garði. Mikill metnaður við steypuvinnu tryggir að áferð veggja verði vönduð. Óhætt er að fullyrða að góður árangur hefur náðst við veggjasteypur fram að þessu. Húsið verður ólíkt flestum öðrum húsum sem byggð hafa verið hér á landi að því leyti að utan við hefðbundna útveggi og glugga kemur glerhjúpur. Hjúpurinn verður með innbrenndu mynstri sem gefur húsinu sérstakt útlit auk þess að virka sem veðurhlíf fyrir húsið. Það verður spennandi að takast á við það verkefni að smíða burðargrind glerhjúpsins og koma honum upp. Verklok eru í október á þessu ári og þá á húsið að vera tilbúið til notkunar.
|