18.02.2010
Bygging nýs grunnskóla í Nuuk
Ístak er í miðjum klíðum við að reisa grunnskóla í nýju úthverfi í Nuuk sem nefnist Qinngorput. Talsverð uppbygging sér stað í Nuuk, sérstaklega er byggt mikið af íbúðahúsnæði enda er mikill skortur á því og áform um að rífa margar illa farnar blokkir í miðbænum.
Skólinn er alls um 6.500 m2 á tveimur hæðum að huta og nokkur tæknirými eru á 3. Hæð
Skólanum er skipt i fjögur svæði: íþróttasal, sameiginlegt rými með eldhúsi, matsal og tvær kennsluálmur Burðarvirki hússins er úr steypu og límtré. Botnplata og undirstöður eru steyptar, einnig veggir, súlur og bita á fyrstu hæð þar sem húsið er á tveim hæðum. Holplötur eru í hluta gólfs. Stýfingarveggir á annarri hæð eru staðsteyptir, að öðru leyti er burðarvirki hússins úr límtré. Útveggir eru flestir léttbyggðir með burðarvirki úr stálprófílum. Steyptir útveggir eru einangraðir og klæddir að utan. Þak er gert úr trapisuplötum. Steinullareinangrun og þakpabba. Einangrun útveggja er 245 mm þykk og þakeinangrun er 265 mm. Klæðning útveggja er ómeðhöndlað timbur og gluggar eru álklæddir trégluggar.
Hér eru allir að keppast við að loka húsinu fyrir reisugillið sem er ákveðið þann 12.mars. Nú er verið að einangra og dúkleggja þakið og loka útveggjum. Hér hefur verið einmuna veðurblíða frá áramótum, mildir vetur sem þessir koma víst í Nuuk einu sinni á áratug. Þetta hefur jákvæð áhrif á vinnuafköst og erum við þó nokkuð á undan áætlun..
Á vinnustaðnum eru að jafnaði 20 íslenskir og 10-15 innlendir smiðir og verkamenn, 5 á skrifstofu, tveir verkstjórar og tveir í eldhúsi. Íslenskt starfsfólk fer heim á fjögurra vikna fresti, þ.e. þrír mismunandi hópar sem skarast á tveggja vikna fresti. Hér hefur verið fjörugt félagslíf í vetur; starfsmenn spila félagsvist í borðsalnum, gönguhópurinn hefur farið í lengri og styttri kvöldgöngur, á sunnudagskvöldum er spilaður innanhúsfótbolti og nýjasta æðið er að fara í líkamsræktarstöð. Jólahlaðborðið var haldið í “Gotthåbs brygghus” þar sem boðið var upp á dæmigerðan danskan jólamat og síðan var dansað fram á rauða nótt. Auk þess er ágætt úrval af afþreyingu í Nuuk; menningarhúsið “Katuaq” býður upp á tónleika, bíó, málverkasýningar og í húsinu er einnig vinsælt kaffihús þar sem fólk kemur til að sýna sig og sjá aðra
|