12.03.2010
Lagnir í Varmastöð Hellisheiði
Í byrjun árs hóf Ístak framkvæmdir við 1. áfanga Varmastöðvar í Hellisheiðarvirkjun. Verkið felur í sér uppsetningu vélbúnaðar, varmaskipta og lagningu gufulagna ásamt fjölda annarra lagna úr svörtu og ryðfríu stáli.
Stærstu lagnirnar eru um 1200 mm í þvermál og spannar stærð lagnanna svo mest allt sviðið niður í 20 mm ryðfríar stýriloftslagnir. Stór hluti af verkinu er forsmíði á ýmsum stálhlutum svo sem pöllum, stigum, undirstöðum og festum undir pípurnar sem smíðaðar verða í járnsmiðju Ístaks að Tungumelum. Þótt vetur konungur hafi heimsótt verkstað í nokkra daga þá hefur veðrið verið með eindæmum gott það sem af er af vetri. Ístak sér einnig um snjóruðning á svæðinu og hefur hann verið háður veðráttu eins og gengur.
|