28.06.2010
Stamsund í Noregi
Í Stamsund í Noregi fer ferðaþjónustan brátt að ná hámarki og verkið að síga á seinni hlutann. Hreinsun hafnarinnar er nánast lokið, en eftir er að þekja mengað efni á urðunarstað þess á sjávarbotni með hreinu efni. Sprengivinnu við nýja innsiglingu er nýlokið. Efni sem fellur til við gerð innsiglingarinnar er notað til að byggja nýjan varnargarð við hlið hennar og er komið um það bil 1/4 af endanlegu magni út í garðinn. Eftir stendur að sprengja og dýpka svæði inni í höfninni.
Þar sem nýja innsiglingin verður var áður eyja og mun því útlit hafnarinnar breytast mikið. Eftir framkvæmdina munu stærri skip komast inn í höfnina sem mun auka atvinnumöguleika í fiskvinnslu og öðrum iðnaði. Því hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu í mörg ár eftir þessari framkvæmd.
Hurtigruten er ferja sem siglir um strandlengju Noregs og einn af viðkomustöðum hennar er Stamsund. Ferjurnar eru það stórar að þær munu þrátt fyrir breytingar ekki leggjast að bryggju inni í höfninni, heldur líkt og áður við bryggju sem er við utanverða höfnina. Ferjurnar eru stórar og Stamsund er lítill bær þar sem búa einungis 1500 manns. Því setur það verulegan svip á mannlífið þegar ferjurnar leggjast að bryggju. Tvær ferjur koma á hverjum degi.
Fyrir utan hefðbundnar atvinnugreinar og ferðaþjónustu er Stamsund einnig aðdráttarafl fyrir listafólk og eru meðal annars starfrækt tvö leikhús í bænum. Fyrir nokkrum vikum var haldin hér leikhúshátíð sem stóð í eina viku. Ekki vildi betur til en svo að rafmagnslaust varð á öllu Lofoten svæðinu á föstudagskvöldinu og var rafmagnslaust í 5 klukkutíma. Ístak gat lánað skipuleggjendum hátíðarinnar rafstöðvar sem varð til þess að hægt var að sýna tvö leikrit samkvæmt áætlun.
|