20.07.2010
Grænlenskt sumar
Nýi skólinn í úthverfinu Qinngorput, Nuuk, sem Ístak hefur byggt, varð fokheldur um miðjan mars og reisugilli haldið við mikinn fögnuð starfsmanna, verkkaupa og annarra gesta. Síðan hefur mikið gerst; útveggir eru að verða tilbúnir fyrir timburklæðninguna, búið er að setja flesta glugga og hurðir í útveggi og búið er að setja lokalag af pappa á þakið. Útihurðirnar eru litríkar í meira lagi; gular, appelsínugular og rauðar í bland sem mótvægi við ómeðhöndlaða grenipanelklæðningu sem fær að grána með tímanum.
Innandyra er verið að ljúka smíði innveggja og byrjað einangra og klæða loft. Undirverktakar eru fyrirferðamiklir í húsinu þessa stundina; rafvirkjar, pípari, blikksmiðir, málarar og járnsmiðir. Núna eru u.þ.b. 35 starfsmenn Ístaks að vinnu í húsinu auk fjölda grænlenskra rafvirkja.
Að auki er Ístak að byggja nýjan leikskóla við hlið skólabyggingarinnar. Búið er að steypa sökkla og þjappa fyllingarefni í grunn.
Veðrið hefur verið gott og þurrt í sumar, oft er köld þoka að morgni sem hverfur á hádegi, þá fer sólin að skína og getur verið mjög heitt seinnipartinn. Hér er þó nokkuð um flugu, bæði mý og moskító enda standa byggingarnar í mýrlendi. Þær gera starfsmönnum lífið leitt, sérstaklega þeim sem vinna upp á þaki eða í nýjum grunni leikskólans.
Þessa dagana njóta starfsmenn Ístaks þeirra kosta sem Grænland býður upp á, einkum að sumarlagi. Stutt er í ýmsar gönguleiðir um nágrennið og nokkrir starfsmenn hafa gengið upp á Store Malene; ca. 800 metra hátt fjall sem gnæfir yfir Qinngorput-hverfi og er eins konar „Esja“ fyrir Nuuk. Landið er paradís veiðimannsins, vötn og ár eru full af silungi og ekki þarf að borga fyrir veiðileyfi. Hins vegar þarf að leigja mann og bát til að komast á góðan veiðistað enda er lítið um vegi hér. Ekki er þó nauðsynlegt að leita langt yfir skammt, nokkrir starfsmenn renndu fyrir fiski framan af klettum hér í bænum og mokveiddu þorsk og eina væna lúðu.
Heimsmeistaramótið í fótbolta var snar þáttur í lífi starfsmanna meðan á mótinu stóð. Var starfræktur öflugur veðbanki í tengslum við mótið og er hægt að fullyrða að þeir sem lentu í þremur efstu sætunum höfðu lítið vit á fótbolta.
Núna er talsvert um ferðamenn í bænum. Í byrjun júlí var margt um manninn í tengslum við þing og menningarhátíð Inuita sem komu hvaðanæva að; Alaska, Kanada, Rússlandi og víðar. Seinustu helgi var haldið grænlandsmót í kajakróðri og víðavangshlaup um fjöll og firnindi. Ekki má heldur gleyma fyrstu Gay pride hátíð grænlendinga sem haldin var á vordögum og fór þátttaka fram úr björtustu vonum.
Inussiarnersumik inuulluaqqusillunga - með kærri kveðju frá Nuuk.
|