22.07.2010
Pistill frá Jamaica
Framkvæmdir Ístaks í Falmouth á norðurströnd Jamaica eru nú komnar á gott skrið. Byrjað hefur verið á 11 byggingum af amk. 17 sem Ístak mun byggja eins og málum er háttað nú. Á meðfylgjandi myndum má sjá að framkvæmdir við byggingarnar eru mis langt komnar. Sumar byggingar eru eingöngu skýli (shades) þar sem hægt verður draga sig í hlé frá brennheitri sólinni í Karabíska hafinu. Flestar byggingarnar eru þó veglegri en það.
Byggingaraðferðir við húsin eru mjög mismunandi. Valin var tilt-up aðferð við flestar byggingarnar til að auka byggingarhraðann. Þá eru veggeiningar steyptar ofan á botnplötunni en síðan reistar upp, þannig að um nokkurs konar einingahús er að ræða. Síðan eru þessar byggingar klæddar að utan með múrsteinshleðslu, limestone eða borðaklæðningu. Önnur gerð er hefðbundna byggingaraðferðin á Jamaica en húsin eru úr hleðslusteini og síðan eru súlu- og bitastyrkingar gerðar úr steypu. Þessi aðferð er mannfrek og seinleg. Þá eru öll skýli byggð með stálburðargrind. Reyndar eru allar byggingar með þakvirki úr stál kraftsperrum og þær sem eru á fleiri hæðum en einni með stálburðargrind í gólfum, en steyptri plötu. Þar sem byggingartíminn er afar stuttur voru þakvirkin einnig gerð úr einingum sem smíðaðar eru á staðnum, og hífðar upp þegar stálburðargrind þaksins er risin.
Ístak er nú komið með nokkurn fjölda stjórnenda á staðinn, en stjórnendahópurinn telur nú 18 manns en í honum eru 16 Íslendingar og 2 Danir Þá eru nú starfandi alls á staðnum að meðtöldum undirverktökum um 130 manns.
Nú erum við að komast inn í regntímabilið og getur það valdið töfum svo ekki sé nú minnst á fellibylji sem kunna að fara yfir eyjuna, en Jamaica hefur sloppið nokkuð vel við fellibylji undanfarin ár. En það vandamál er eins og önnur og verður að undirbúa sig fyrir þær aðstæður ef til kemur. Ístakshópurinn hér á Jamaica er þó einbeittur að leysa þau vandamál sem og önnur sem upp munu koma hverju sinni.
Meðfylgjandi er loftmynd af svæðinu tekin í byrjun júlí og nokkar myndir sem sýna stöðu framkvæmda.
|