ENGLISH
Engjateig 7  ::  105 Reykjavík  ::  Sími 530 2700  ::  Fax 530 2724  ::  Netfang  istak@istak.is
Heim  ::  Veftré  ::  Fyrirspurnir  ::  ENGLISH Prentvæn útgáfa
Leita
Fréttir
28.07.2010
ILULISSAT Í GRÆNLANDI
  FLEIRI MYNDIR
Enn er unnið að uppbyggingu vinnubúða og aðstöðu í Pakitsoq en það er nafnið á vinnustaðnum við virkjunina. Virkjunin er í um 60 km fjarlægð frá bænum Ilulissat. Í vinnubúðunum verður svefnpláss fyrir um 110 manns, nú búa þar um 60 manns. Mötuneytið er komið í gang og verið að reisa verkstæði, lager og steypustöð. Nú vinna um 90 manns við verkið. Komið er á internet og símasamband.

Verkið er alverk og er því hönnun líka á hendi Ístaks. Á verkfræðistofum Verkíss og Eflu hafa verið í vor og sumar um 10 manns í vinnu við hönnunarstörf.

Lokið er við að flytja mest af tækjum og búnaði til verksins á verkstað. Stór hluti þessa búnaðar var fluttur frá Öðrum firði í Sisimuit til Ilulissat. Mikð af búnaði og tækjum hefur einnig verið fluttur á staðinn frá Evrópu og Íslandi, og þurfti að ráðast í umtalsverðar fjárfestingar í nýjum tækjum og skipakost. Nokkur tæki hafa verið flutt frá verkum Ístaks í Noregi. Í raun er það ótrúlegt hve mikinn búnað og tæki þarf til verksins.

Í Ilulissat bæ er annað mötuneyti og gistirými fyrir 22, og þar bjuggu starfsmenn í upphafi. Siglt var inn í fjörð á morgnana og heim á kvöldin. Línuflokkurinn sem telur 11 manns hefur þar aðstöðu og gistir þar um helgar en starfsmenn búa annars í tjöldum meðfram línunni.

Háspennulínan frá virkjunarstað og niður í bæinn er um 50 km löng. Í sumar er unnið að gerð undirstaða fyrir möstrin. Sú vinna gengur vel og er nú lokið við um 40 undirstöður af 138.

Í Pakitsoq hefur verið unnið að vegagerð. Frá vinnubúðunum að aðkomugöngum stöðvarhúss eru um 2,5 km. Sprengja þurfti fyrir veginum yfir nes hluta leiðarinnar. Í sumar verður unnið áfram að vegagerð að inntakinu sem er í vatni 187 og síðan áfram að vatni 233.

Nú er verið að byrja á forskeringu fyrir aðkomugöng stöðvarhúss og stefnt er að því að byrja að bora aðkomugöng við Stöðvarhúss 30. ágúst. Í ágúst verður líka byrjað að bora aðkomugöng að frárennslisgöngum. Í september ætti því að vera hafin vinna við 2 stafna í jarðgöngum. Tucon frá Slóvakíu verða undirverktakar við gangagerðina.

Samið hefur verið við framleiðendur á túrbínum, rafölum og spennum. Eftir er að bjóða út framleiðslu og uppsetningu háspennumastra.

Gert er ráð fyrir að fyrsta túrbínan af 3 verði tekin í notkun í nóvember 2012. Verklok eru í desember 2013.

Ilulissat bær stendur við Diskó flóann en þar er mikil náttúrufegurð og fjöldi ferðamanna. Í llulissat eru um 5000 íbúar og 4000 hundar. Vel hefur verið tekið á móti Ístaksmönnum og öll samskipti við heimamenn hafa verið góð.

Skipakosturinn á staðnum er nú; Viking II, landgönguprammi, Smyrill, dráttar- og flutningabátur, Lómur, hraðbátur, Flexifloat prammi óskírður (30 * 40 fet) og minni bátar.


03.01.2012 Viðburðarríkt ár
19.12.2011 Glussaball haldið í 14 skipti
07.12.2011 Verklok Hauge - Lonevåg
14.11.2011 Starfsmenn þjónustudeilda sækja Búðarháls heim
10.11.2011 Falmouth - valin höfn ársins

ENGLISH  ::  Veftré  ::  Fyrirspurnir Heim  ::  Til baka  ::  Upp