26.08.2010
ÍSTAK með hagstæðasta tilboð í Búðarhálsvirkjun
Í dag voru opnuð tilboð í þrjá áfanga Búðarhálsvirkjunar, stífluframkvæmdir, jarðgöng og stöðvarhús. Ef tekið er tillit til afslátta verktaka í heildarverkið er tilboð ÍSTAKS lægst, kr. 9.835.432.365. Kostnaðaráætlun Landsvirkjunar var kr. 12.698.048.805 og nemur tilboð ÍSTAKS því 78% af kostnaðaráætlun. Á undanförnum misserum hefur ÍSTAK þurft að segja upp fjölda starfsmanna sem unnið hafa við framkvæmdir hjá ÍSTAKI á Íslandi. Þessi verkefni munu því verða til þess að fjölga þurfi starfsmönnum á ný. Ætla má að heildarfjöldi starfsmanna við þessar framkvæmdir verði á bilinu 200 - 300 manns.
|