10.11.2011
Falmouth - valin höfn ársins
Falmouth höfn þar sem Ístak hefur séð um byggingu 19. aldar þorps í Georgian breskum stíl var vígð í mars 2011. Á Seatrade Europe í Hamborg fékk höfnin og aðstaðan þar verðlaun Seatrade insider Cruise Award 2011 sem Port of the Year.
Um mitt ár 2009 var samið við Ístak og Pihl um byggingu hafnar ásamt byggingu á 19. aldarþorpi í Falmouth á Jamaica. Nú er þessum framkvæmdum að mestu lokið og fékk höfnin hin eftirsóttu Seatrade Europe verðlaun í flokki hafna fyrir skemmtiferðaskip. Sjá www.royalcaribbeanblog.com/category/category/falmouth Höfnin var vígð í mars 2011. Pihl sá um byggingu hafnarinnar, en Ístak sá um lóðargerð og byggingu á 19. Aldar þorpi undir verslanir og þjónustu. Ístak stóð fyrir allri hönnun og sá um byggingar-framkvæmdir á svæðinu. Hönnun verksins hófst haustið 2009 og voru ráðnir bandarískir hönnuðir til verksins. Eiginlegar framkvæmdir á hafnarbakkanum í Falmouth á Jamaica hófust síðan í mars 2010 og stóðu fram á haust 2011. Ístak notaði eigin stjórnendur til verksins, en heimamenn unnu síðan verkið undir þeirra stjórn. Þegar mest var um að vera störfuðu yfir 20 stjórnendur frá Ístaki við verkið. Á meðfylgjandi myndum má sjá árangurinn, en þetta er eitt af mörgum óhefðbundnum verkefnum sem Ístak hefur tekið að sér. Verkkaupi var Royal Caribbean Cruise Line sem rekur skemmtiferðaskip og siglir víða en helsta markaðssvæði þess er Karabíska hafið. Höfnin var gerð til þess að taka við stærstu skemmtiferðaskipum heims sem eru um 200.000 tonn að stærð og rúma um 6.000 farþega ásamt 3.000 manna áhöfn. Á meðfylgjandi myndum má sjá annað af tveim risaskipum RCCL Oasis of the Seas við bryggju í Falmouth og jafnframt mannlífið á hafnarbakkanum á skipsdegi.
|