ENGLISH
Engjateig 7  ::  105 Reykjavík  ::  Sími 530 2700  ::  Fax 530 2724  ::  Netfang  istak@istak.is
Heim  ::  Veftré  ::  Fyrirspurnir  ::  ENGLISH Prentvæn útgáfa
Leita
Fréttir
07.12.2011
Verklok Hauge - Lonevåg
  FLEIRI MYNDIR
Frá árinu 2009 hafa tugir manna unnið við framkvæmdir milli Hauge og Lonevåg á Osteröy, lítilli eyju skammt frá Bergen. Þarna er um að ræða 3 km langan veg með göngum sem eru 1,5 km og 100 metra langa brú.

Verkið hófst með því að ryðja skóg til þess að komast að gangamunnanum en þetta er óvenjulegt við jarðgangagerð á Íslandi. Þá hófst vinna við gangagerð, vegagerð og brúargerð. Starfsmenn Ístaks lögðu mikið á sig til þess að allt yrði tilbúið á réttum tíma og urðu síðustu vinnudagarnir oft nokkuð langir. Allt gekk samt að óskum og gátu Ístaksmenn nú hugað að því að pakka saman búnaði sínum og halda á vit nýrra ævintýra.
Þann 16.nóvember síðastliðinn var vegur 567 frá Hauge til Lonevåg formlega opnaður. Þar með er lokið rúmlega tveggja ára vinnu hjá Ístaki við byggingu mannvirkisins. Þetta er mikil samgöngubót fyrir eyjarskeggja og styttir leiðina milli bæjanna um nokkra kílómetra . Jafnframt er kominn mjög greiðfær og öruggur vegur en vegurinn sem var fyrir var að mestu einbreiður. Vígsla mannvirkisins fór fram klukkan 12 á hádegi á miðvikudegi og lék veðrið við viðstadda, sól, logn og svolítið frost. Mikill áhugi var hjá eyjarskekkjum fyrir opnunarhátíðinni. Nokkur hundruð manns voru saman komin á nýrri og glæsilegri brú í Lonevåg framan við nýja gangamunann. Engu var líkara en kominn væri þjóðhátíðardagur. Fólk var með bros á vör og allir voru sammála um að mannvirkið væri hið glæsilegasta. Eftir að klippt hafði verið á borða óku rútur og fjöldi fólksbíla gegnum göngin í langri röð. Eyjarskeggjar voru nú loksins búnir að fá þessa miklu samgöngubót sem þeir höfðu beðið lengi eftir.


03.01.2012 Viðburðarríkt ár
19.12.2011 Glussaball haldið í 14 skipti
14.11.2011 Starfsmenn þjónustudeilda sækja Búðarháls heim
10.11.2011 Falmouth - valin höfn ársins
07.11.2011 Vetrarhörkur í Ilulissat.

ENGLISH  ::  Veftré  ::  Fyrirspurnir Heim  ::  Til baka  ::  Upp