03.01.2012
Viðburðarríkt ár
Árið 2011 var viðburðaríkt hjá Ístaki. Fyrirtækið lauk alls 8 verkefnum á árinu.
Á Íslandi var lokið samningi um Frárennslismannvirki á vesturlandi og verksamningi um sjólagnir var frestað til ársins 2015. Á Grænlandi var lokið við tvö verkefni, skóla og leikskóla í Nuuk. Ístak afhenti einnig hafnar- og verslunaraðstöðu fyrir stærstu skemmtiferðarskip heims í Falmouth á Jamaica.Í Noregi lauk Ístak við gerð brimvarnargarðs í Gryllefjord og dýpkunarverkefni í Åramssundet og Stamsund. Í Stamsund var einnig byggður hafnargarður. Síðast en ekki síst afhenti Ístak veggöng og brú sem tengir saman þéttbýliskjarnana Hauge og Lonevåg við góðan orðstír heimamanna. Nokkur ný verkefni bættust við. Í Noregi voru gerðir tveir samningar um gerð vegganga sunnan við bæinn Alta í norður-Noregi. Hér heima hóf Ístak vinnu við stækkun vöruhúss Nathan- og Olsen og byggingu nýrrar þjónustustöðvar Skeljungs í Borgarnesi. Ístak samdi einnig um nokkur viðbótarverk í Straumsvík í framhaldi af verksamningi við ISAL. Starfsmenn Ístaks kvöddu svo gamla árið með árshátíð. Á henni var tilkynnt hverjir höfðu unnið til verðlauna á ljósmyndasamkeppni starfsmanna með einkunnarorðunum „Vinnustaðir Ístaks“. Myndirnar sem bárust má sjá með fréttinni. Vinningsmyndin er frá verki Ístaks við ÍSAL og er forsíðumynd fréttarinnar.
|