FLE Stækkun Suðurbyggingar til norðurs
Investor Name:
Published Date:
Location:
Value:
Architecture:
Protocol
Verkefnið – FLE Stækkun Suðurbygginar til norðurs – fólst í stækkun landamærasalar og fríhafnarsvæðis fyrir farþega sem ferðast utan Schengen landamæranna á Keflavíkurflugvelli fyrir Isavia. Einnig stækkun og breikkun á landgangssvæði milli suður- og norðurbyggingar flugstöðvar. Alls eru þetta um 7.000 m2 í nýbyggingum auk töluverðrar endurnýjunar á eldra húsnæði. Verkið var flókið þar sem rífa þurfti eldri landgang innan frá eftir að nýr landgangur var byggður utan um eldri landgang og jafnframt sjá til þess að starfsemi flugstöðvarinnar raskaðist ekki meðan á framkvæmdum stóð. Ístak sá um að reisa bygginguna sem var með burðarvirki úr stáli, með steyptum holplötum og útveggir að mestu glerhjúpur. Þá sá Ístak einnig um alla trémíði innanhúss og hafði umsjá með pípulögnum, loftræsi- og raflögnum ásamt múrverki, málun og stálsmíði innanhúss í stýriverktöku. Framkvæmdir hófust í janúar 2016 og var að fullu lokið fyrri hluta árs 2018, en byggingarhlutum var skilað til Isavia í áföngum eftir því sem leið á verktímann, en flugstöðin var þó í fullum rekstri allan tímann sem verkið stóð yfir.
Helstu magntölur:
- Steypa 4000 m3
- Holplötur 2800 m2
- Stálvirki 520 ton
- Utanhúss klæðiningar og glerveggir 2800 m2
- Þakdúkur 2500 m2
- Innréttingar 7.000 m2
Verkkaupi:
- Isavia
Tímabil:
- Janúar 2016 – apríl 2018
Eftirlit með framkvæmd:
- VSS, Verkfræðistofa Suðurnesja
Hönnuðir:
- Steinar Sigurðsson arkítekt
- Verkís
- Mannvit
Hlutverk Ístaks:
- Aðalverktaki.
- Verkefnisstjóri Brynjar Brjánsson