Vinnustaðurinn

Ístak er öflugt verktakafyrirtæki sem annast fjölbreytt verkefni á ýmsum sviðum. Þar má nefna byggingaframkvæmdir af ýmsu tagi, virkjanir, stóriðjuframkvæmdir, jarðvinnuverk, mannvirkjagerð og hafnarframkvæmdir auk vega og brúagerðar. Í

FJÖLÞJÓÐLEG SAMVINNA DRÍFANDI VIRÐING SAMHELDNI SKEMMTILEG

Kraftur í fjölbreytileika

Vinnustaðurinn okkar

Hjá Ístaki starfar samhentur hópur fólks sem drífur hvert annað áfram. Vinnustaðurinn okkar

einkennist af gagnkvæmri virðingu, samvinnu og skemmtilegu andrúmslofti. Við erum stolt af því

að vera fjölþjóðlegt fyrirtæki þar sem ólík menning og víðtæk þekking mætast í fjölbreyttum og

krefjandi verkefnum. Samheldni er okkar styrkur.

Samfélagsleg ábyrgð og sjálfbærni

Ístak leggur metnað í að hafa jákvæð áhrif á samfélagið og umhverfið. Við styðjum reglulega við

góð málefni með styrkjum sem efla nærumhverfi okkar og samfélagið í heild.

Vottanir og gæðamál

Við gerum aldrei málamiðlanir þegar kemur að gæðum og öryggi. Starfsemi okkar byggir á skýrum stefnum og viðurkenndum alþjóðlegum stöðlum sem tryggja fagleg vinnubrögð á öllum stigum. Ístak starfar samkvæmt eftirfarandi vottunum:

  • ISO 9001 – Gæðastjórnun
  • ISO 14001 – Umhverfisstjórnun
  • ÍST 85:2012 – Jafnlaunavottun
  • CE vottun – Staðfesting á samræmi við evrópskar kröfur

Þekking og fræðsla

Hjá Ístaki leggjum við áherslu á markvissa starfsþróun. Við styðjum starfsfólk í að auka þekkingu sína, takast á við ný verkefni og þróast í starfi. Með reglulegri endurgjöf, fræðslu og tækifærum til aukinnar ábyrgðar skapast skýr leið til vaxtar innan fyrirtækisins.

Ístaksskólinn

Ístaksskólinn er miðlæg fræðslugátt og þjálfunarvettvangur fyrir starfsmenn Ístaks. Markmið skólans er að tryggja að allt starfsfólk búi yfir nauðsynlegri þekkingu og færni til að sinna störfum sínum af öryggi og fagmennsku.


Í gegnum Ístaks skólann fá starfsmenn aðgang að fjölbreyttu fræðsluefni.


Við leggjum áherslu á að allir gangi öruggir til verka með vandaðri fræðslu í öryggis-, heilbrigðis- og umhverfismálum. Auk þess að þjálfa færni í tölvukerfum og netöryggi, tökum við vel á móti erlendu starfsfólki með hagnýtum upplýsingum um íslenskt samfélag. Þetta snýst um að vera vel undirbúinn – frá fyrsta degi.

Félagslífið

Öflugt félagslíf er mikilvægur hluti af menningu Ístaks. Við vitum að sterk liðsheild mótast bæði í krefjandi verkefnum og í samveru utan vinnu. Hvort sem um ræðir flúðasiglingar, árshátíðir eða aðra sameiginlega viðburði leggjum við áherslu á að efla samstarf, styrkja tengsl og byggja upp traust innan hópsins.

Heilsa og öryggi

Heilsa og öryggi starfsfólks er alltaf í fyrsta sæti. Við leggjum mikla áherslu á forvarnir og öruggt vinnuumhverfi, hvort sem unnið er við krefjandi aðstæður í jarðgöngum eða á hefðbundnum byggingarsvæðum. Við hvetjum líka til heilbrigðs lífstíls, meðal annars með virkum göngu og skokkhópi Ístaks og reglulegum hreyfiáskorunum þar sem við hvetjum hvert annað til dáða.

Lykiltölur og starfsánægja

Við mælum árangur okkar ekki bara í steypu og stáli, heldur líka í vellíðan starfsfólks. Við fylgjumst náið með starfsánægju og vinnum markvisst úr niðurstöðum vinnustaðagreininga.

Félagslífið í myndum

Við bjóðum upp á fjölbreyttan vinnustað fyrir fólk á öllum aldri, af ólíkum uppruna og í ólíkum störfum.

Störf í boði

Við erum alltaf að leita að og opin fyrir góðu starfsfólki svo ekki hika við að senda á okku umsókn. Við svörum öllum.