Vélsmiðja Ístaks þjónar breiðum hópi viðskiptavina með allt sem snýr að nýsmíði, viðhaldi og uppsetningu á stáli, áli og ryðfríu stáli. Viðskiptavinir okkar spanna allan skalann, allt frá stórfyrirtækjum í iðnaði og orkuvinnslu til minnstu smáfyrirtækja.
Dæmi um verkefni eru uppsetning á vélbúnaði og uppsetning á stálgrindum ásamt málmsmíði af öllum stærðum og gerðum. Einnig erum við með stóran sandblástursklefa og málningarverkstæði sem stenst gæðakröfur kröfuhörðustu verkkaupa.