14.02.24

115 tonna jarðýta til starfa við varnagarðana

Frá því í lok nóvember sl. þá hefur á vegum Ístaks verið unnið í að skoða að fá til landsins stóra jarðýtu vegna vinnu við varnargarða í kringum Svartsengi og við Grindavík. 

Fyrir sléttum tveimur vikum þá var tekin ákvörðun um að flytja heim vél sem okkur stóð til boða að leigja frá, RG / Rental Group í Noregi þetta er ný uppgerð Caterpillar D11 jarðýta sem vegur um 115 tonn og eru þessar vélar með stærstu fjöldaframleiddu jarðýtum í heiminum. 

 

Vélin var flutt frá Vikersund í Noregi til Hirtshals í Danmörku og þaðan heim til Íslands, um þriggja sólahringa seinkun var vegna veðurs á að skipið kæmi til Þorlákshafnar. 

Um miðjan dag á fimmtudag hófst samsetning á vélinni og var hún tilbúin til vinnu á laugadagsskvöld. 

 

Það er ótrúlega gaman að sjá að það sé mögulegt að koma jafn stóru tæki til landsins á þetta stuttum tíma og væri það ekki hægt fyrir okkur hjá Ístak nema með samstilltu átaki margra og skipta þar sköpum öflugar stoðdeildir Ístaks. 

 

Með tilkomu þessara jarðýtu er verið að efla flotann og gera viðbragðið enn sterkara ef eitthvað kemur upp á og ef reisa þarf varnargarða í hvelli. Þær eru afkastamiklar og þörf á að vera með tvær jarðýtur við vinnu garðanna til að geta brugðist við. Framkvæmdirnar munu ganga betur og hraðar fyrir sig með nýju jarðýtuna í vinnu þar að auki er jarðýtan tilvalin í allar stórar jarðvegsframkvæmdir.