
Ístak hélt BIM dag Ístaks í annað sinn síðastliðinn fimmtudag. Viðburðurinn fór fram í Háteigi á Grand Hótel og var vel sóttur en um 120 manns mættu til að fylgjast með dagskránni.
Markmið BIM dagsins er að miðla þekkingu, deila reynslu og kynna hvernig BIM og aðrar stafrænar lausnir eru nýttar í verkefnum innan Ístaks og víðar innan Per Aarsleff samstæðunnar.
Fulltrúar frá systurfélögum Ístaks, Per Aarsleff og Wicotec Kirkebjerg, héldu áhugaverð erindi þar sem þau sögðu frá reynslu sinni af notkun BIM og stafrænna lausna í framkvæmdum. Innan Per Aarsleff samstæðunnar er til staðar víðtæk þekking og reynsla af notkun BIM og stafrænna verkfæra sem styðja við skilvirkari verkefnastjórnun og framkvæmd.
BIM-deild Ístaks tók einnig þátt í dagskránni og kynnti meðal annars ný verkfæri sem eru að koma til notkunar innan fyrirtækisins, þar á meðal áhættumatstól og VerkAI, slík verkfæri styðja við áframhaldandi þróun stafrænna lausna í verkefnum Ístaks.
BIM dagur Ístaks er mikilvægur vettvangur fyrir starfsfólk og samstarfsaðila til að fræðast um nýjungar, deila þekkingu og efla samtal um stafræna þróun í byggingariðnaði.
Við þökkum enn og aftur fyrir frábæra þátttöku.