
Í september var farið í þá framkvæmd að byggja yfir Grillið á Hótel Sögu. Ístak hefur leitað ýmissa lausna við að koma upp yfirbyggingu til bráðabirgða svo hægt sé að athafna sig við umfangsmiklar endurbætur á Grillinu án áhrifa frá veðri og vindum. Fundin var lausn frá Altrad-Dessa í Bretlandi sem á að standast allar þær kröfur sem við gerum varðandi vindálag og snjó. Þeir sendu sérfræðing til okkar sem fór yfir kerfið með okkar starfsfólki og stýrði uppsetningunni.
Það verður áhugavert að sjá hvernig þakið reynist við íslenskar aðstæður en hingað til höfum við ekki séð sambærilegar lausnir nýttar hér á landi.