
Mikið hefur gengið á í vinnu okkar við Varnargarða við Grindarvík, þar sem vel hefur gengið síðustu daga.
Um kl 8:00 í gærmorgun sást bjarmi á lofti og fljótlega á eftir var farið af stað í að átta sig á staðsetningu sprungunnar. Það kom strax í ljós að gossvæðið var rétt við vinnusvæði Ístaks og vélar sem voru settar á hæsta punkt kvöldið áður til öryggis voru 400m frá sprungusvæði og hraun rann ákveðið í áttina að þeim. Þegar leyfi kom til að sækja vélarnar var farið upp með þyrlu til að meta aðstæður og síðan með góðu skipulagi og hóflegum skammti af hlaupum hjá mönnum sem almennt leggja ekki mikla stunda á það þá náðist að fjarlægja öll tækin.
Undanfarna daga hefur verið vinna í gangi við að útbúa nýjan Grindarvíkurveg til að hægt væri að loka 150m löngu skarði í aðal varnargarðinum. Ásamt því að unnið var í að verja veitulagnir til Grindarvíkur. Ráðist var í að loka þessu skarði strax og var unnið á fullu til kl 14:00 í gær, þá þurfti að rýma en á þeim tímapunkti var 99% komið í skarðið.
Um kl 15:30 var farið af stað aftur og gerður 500m langur garður fyrir neðan skarðið til að taka það sem kom yfir garðinn í dag og er þeirri vinnu lokið. Næstu skref er að halda áfram í neyðargörðum vestur fyrir Grindarvík ásamt mögulegri vinnu inn í bænum til að stýra hraun streyminu.
Svona aðgerðir væri ekki hægt að fara í nema með góðu samstarfi við almannavarnir og björgunaraðila, t.d er sérsveit lögreglustjóra búinn að vera með 1-2 dróna stanslaust á lofti yfir okkur í dag til að vakta og vera til stuðnings, starfsmenn voru einnig með súrefni ef þörf kæmi upp, allir starfsmenn voru með gasgrímur með sér og flestir einnig með gasmæla. Rétt er að taka það fram að vindur var hagstæður og lítil mengun var að mælast.
Hugur okkar er með íbúum Grindavíkur á þessum erfiðu tímum.