
Ný tvíbreið brú yfir Stóru-Laxá í Hreppum var formlega opnuð í gær, fimmtudaginn 13. júlí 2023. Þó hafði áður verið opnað fyrir umferð þann 25. júní 2023. Nýja tvíbreiða brúin kemur í stað einbreiðrar 120 m langrar brúar frá árinu 1985. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar héldu stuttar ræður á brúnni áður en þau klipptu á borða til að marka hina formlegu opnun. Með þeim í því verkefni voru þeir Haraldur Þór Jónsson oddviti og sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Jón Bjarnason oddviti Hrunamannahrepps. Stóra-Laxá liggur enda á mörkum sveitarfélaganna tveggja.
Hefð hefur verið fyrir því að ráðherra fari fyrstur yfir brýr eftir formlega opnun en í þetta sinn voru það börn af svæðinu sem fengu þann heiður en fararskjótarnir voru forlátir kassabílar sem þeir Haraldur og Jón ýttu yfir brúna.
Verkið sem Vegagerðin bauð út bar heitið; Skeiða- og Hrunamannavegur (30) um Stóru-Laxá. Í því fólst bygging brúar yfir Stóru-Laxá, gerð nýs vegkafla Skeiða- og Hrunamannavegar (30) beggja vegna, breikkun vegamóta við Skarðsveg og við Auðsholtsveg og gerð reiðstígs. Nýja brúin er til hliðar við gömlu brúna, tvíbreið, staðsteypt, eftirspennt bitabrú, 145 m löng í fjórum höfum. Lengd vegkafla er rúmlega 1000 m og lengd reiðstígs rúmir 300 m.
Tilboð í verkið voru opnuð 24. ágúst 2021. Ístak bauð rúma 791 m.kr. í verkið sem var tæplega 82 prósent af áætluðum verktakakostnaði. Skrifað var undir verksamning Vegagerðarinnar og Ístaks 23. september 2021. Framkvæmdir hófust í október það ár.
Með Ístak sem aðalverktaka störfuðu margir undirverktakar við útboðsverkið: Steypustöðin sá um steypuframleiðslu, Nesey annaðist jarðvinnu og vegagerð, VA-verktakar unnu við niðurlögn steypu í brúardekk, CCL sá um uppspennu, Bikun sá um klæðningar á vegum og Rekverk settu upp vegrið.
Verklok voru áætluð í lok september 2022 en brúin var opnuð fyrir umferð í júní 2023.
Vegna ytri aðstæðna urðu tafir á afhendingu búnaðar sem þurfti til brúargerðarinnar. Það varð þess valdandi að framkvæmdum seinkaði fram á vetur. Veturinn 2022-2023 reyndist afar kaldur með langvarandi frostatíð sem gerði erfitt um vik að steypa brúargólfið. Því var brugðið á það ráð að byggja yfir brúna og tjalda yfir og niður með hliðum að jörð. Kynt var bæði undir brúargólfið og einnig í tjaldinu yfir brúargólfinu áður en steypt var. Þar inni var orðinn um 10° c hiti þegar steypuvinna hófst. Steypuvinna við brúargólfið hófst að morgni þriðjudagsins 24. janúar og lauk seinnipart miðvikudagsins 25.janúar og hafði vinnan þá staðið yfir samfellt í 30 klukkustundir.
Kuldatíðin hafði fleiri áhrif á framkvæmdina. Í janúar 2023 höfðu myndast klakastíflur í árfarveginum sem voru í þann veginn í bresta. Stefndi þá í stórtjón á brúnni sem var á viðkvæmu byggingarstigi. Við byggingu brúarinnar hafði árfarvegurinn verið þrengdur og verkpallar reistir yfir hann. Fyrirséð var að vatnsopið bæri ekki stóraukið vatnsrennsli með jakaburði. Til að bjarga málum var vegurinn að gömlu brúnni rofinn 19. janúar til að opna nýjan farveg fyrir ána og skapa svigrúm fyrir aukið vatnsrennsli. Næsta dag, þann 20. janúar, gerði asahláku eftir um sex vikna samfelldan frostakafla. Mikill ís var kominn á ána og því viðbúið að áin ryddi sig með miklu vatnsflóði og jakaburði. Þann 21. janúar, tveimur dögum eftir að vegurinn var rofinn, ruddi áin sig fram með miklu flóði og streymdi að hluta um hinn nýja farveg. Með stórvirkum vinnuvélum tókst starfsmönnum Ístaks að bægja frá ísjökum og halda rennslinu greiðu á meðan vatnselgurinn var mestur og forða nýja mannvirkinu frá skemmdum.
