18.02.26

Fréttir af Hótel Sögu

Þeir sem leið hafa átt fram hjá Hótel Sögu undanfarna mánuði hafa eflaust tekið eftir einkennilegri byggingu sem risið hefur þar sem áður var Grillið. 

 

Ístak hefur nú unnið að endurbótum á allri byggingunni, bæði að innan og utan, síðan fyrri hluta árs 2022. Einn liður í þeim endurbótum var viðhald á Grillinu og kom fljótlega í ljós að byggingin var mjög illa farin. Því var tekin ákvörðun um að endurbyggja það frá grunni. Til að tryggja gæði nýbyggingarinnar og verja framkvæmdina fyrir veðri og vindum var jafnframt ákveðið að klæða vinnupalla sem þegar var búið að reisa utan um Grillið auk þess að bæta við sérstakri þakyfirbyggingu. Þar með var búið að pakka öllu Grillinu inn og skapa þannig fyrirmyndar aðstæður til endurbóta. 

 

Þakyfirbyggingin er þannig úr garði gerð að auðvelt er að fjarlægja segldúk af völdum svæðum eða hluta yfirbyggingarinnar tímabundið. Það hefur reynst vel við hífingar á byggingarefnum og við steypuvinnu. Órólegir vegfaraendur geta því andað léttar, yfirbyggingin er ekki komin til að vera heldur mun rísa nýtt Grill í upprunalegri mynd, bara betra. 

 

Framkvæmdum miðar vel. Uppsteypa klárast á næstu dögum og er vinna við reisingu stálvirkis þegar hafin. Í framhaldi verður svo farið í þakvinnu og húsinu lokað. Að því loknu verður yfirbyggingin fjarlægð.