
Fyrsta skóflustungan fyrir hreinsistöðinni Steingerði við Hellisheiðarvirkjun var tekin fimmtudaginn 29. Júní. Með tilkomu hennar tekst að fanga nær allt koldíoxíð og brennisteinsvetni frá virkjuninni.
Það voru þau Gísli H. Guðmundsson framkvæmdastjóri bygginga hjá Ístaks, Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix og Árni Hrannar Haraldsson framkvæmdastjóri Orku Náttúrunnar sem tóku fyrstu skóflustunguna að stöðinni.
Skóflustungan markar upphaf framkvæmda vegna Steingerðar sem er samstarfsverkefni Carbfix og Orku náttúrunnar. Markmið þess er að reisa öflugri hreinsistöð sem mun ásamt núverandi hreinsistöð, fanga nær allt koldíoxíð og brennisteinsvetni úr útblæstri Hellisheiðarvirkjunar og dæla því niður í nálæg basaltberglög til varanlegrar steinrenningar með Carbfix tækninni. Stefnt er að gangsetningu Steingerðar árið 2025 og verður Hellisheiðarvirkjun þar með nær sporlaus, fyrst jarðvarmavirkjana á heimsvísu.
Framkvæmdaverkið felur í sér byggingu húss fyrir starfsemina og lagninga vatns- og gaslagna í jörðu. Ásamt umtengingum bæði á stöðvarhússlóð og við tvær niðurrennslisholur sem eru nærri tengivirki Landsnets á virkjanasvæðinu. Húsið sjálft verður 262 m2 að grunnfleti á einni til tveimur hæðum með lagnagryfju í gólfinu. Húsið verður tvískipt annars vegar vélarsalur og hinsvegar þjónusturými.
Frá árinu 2017 hefur Carbfix átt í samstarfi við svissneska fyrirtækið Climeworks. Fyrirtækin hafa í sameiningu rekið tilraunastöð á Hellisheiði þar sem CO2 er fangað beint úr andrúmslofti og dælt niður í jarðlög þar sem það verður að steindum. Ístak byggir nú einnig hreinsistöðina Mammoth fyrir Climeworks sem er áætlað er að klárast í nóvember á þessu ári.
