
Ístak var með bás á stórsýningunni Verk og vit um liðna helgi. Við fengum fjölda góðra gesta í básinn okkar þar sem við meðal annars kynntum hvernig við notum BIM-tæknina í byggingaframkvæmdum. Meðal þeirra sem heimsóttu okkur í básinn var Ingólfur Hannesson sem tók jafnframt þátt í leik með því að fylgja okkur á LinkedIn. Dregið var úr pottinum að sýningu lokinni og fékk Ingólfur þessi flottu Oculus Quest 2 þrívíddargleraugu í verðlaun. Ingólfur er nemi við Háskóla Íslands á lokaárinu sínu í byggingarverkfræði. Við óskum Ingólfi innilega til hamingju.
Ert þú að fylgja Ístak á LinkedIn? Þar deilum við fréttum af starfsemi Ístak og auglýsum m.a. laus störf.