
Rífandi gangur er í framkvæmdum Ístaks í Bryggjuhverfinu þar sem fyrirtækið reisir sjö íbúðabyggingar með 124 íbúðum fyrir Búseta og íbúðafélagið Bjarg. Fyrir helgi afhenti Ístak hús númer tvö sem er eitt af sex húsum Bjargs og verður það tilbúið til innflutnings á næstu dögum. Áður hafði Búseti fengið sína byggingu afhenta og eru íbúar þegar fluttir inn. Framkvæmdir hófust í júní í fyrra.
Afhending fyrstu tveggja húsanna stóðst áætlun og segir Hafsteinn Guðmundsson, staðarstjóri, menn vera mjög glaða í hjartanu yfir því að það tókst. Þeir þurfi þó að halda vel á spilunum til að afhenda þriðju bygginguna á réttum tíma um miðjan næsta mánuð. Byggingarnar sem þá verða eftir eiga að vera tilbúnar til afhendingar á tímabilinu 15. mars- 15. júní.
Íbúðabyggingarnar standa við tvær nýjar götur í Bryggjuhverfinu, sem eru þvergötur á Tangabryggju, og nefnast Beimabryggja og Gjúkabryggja. Ýmsir hafa velt fyrir sér uppruna og merkingu þessara nafna en þau eru sótt í fornnorrænu. Beimur merkir maður, hermaður eða hús en Gjúki er karlmannsnafn sem merkir líklega “hinn gjafmildi” samkvæmt Stofnun Árna Magnússonar.
