
Mikill áhugi var fyrir brúarráðstefnu Vegagerðarinnar, Byggjum brýr sem haldin var fimmtudaginn 26. apríl síðastliðinn. Um 130 manns sóttu ráðstefnuna sem haldin var á Hótel Reykjavík Grand. Ístak átti erindi á ráðstefnunni. Hjálmur Sigurðsson framkvæmdastjóri mannvirkja, fjallaði um áskoranir verktaka í brúargerð. Hann tók sem dæmi þær hremmingar sem Ístak hefur lent í við byggingu brúar yfir Stóru-Laxá en tafir á aðföngum vegna Covid, mikil kuldatíð og krapaflóð í ánni gerði mönnum erfitt fyrir. Þannig þurfti að rjúfa veginn að brúnni í talsverðan tíma auk þess sem ákveðið var að byggja yfir alla brúna til að geta klárað steypuvinnu.
Farið var yfirólíka þætti sem snúa að brúarsmíðum, veðurfar, undirlendi, bygging þeirra og margt fleira. Einbreiðar brýr voru nokkuð til umræðu, eða þörfin fyrir að fækka þeim.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna og glærur frá fyrirlesurum má finna hér.
