
Hús íslenskunnar stendur við Arngrímsgötu á Melunum í Reykjavík og mun m.a. hýsa fjölbreytta starfsemi stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Húsið er sporöskjulaga og tæknilega flókin bygging sem meðal annars mun hýsa sérhannaða handritageymslu. Árnastofnun deilir byggingunni með Háskóla Íslands og þegar hún verður tilbúin flytjast kennsla og rannsóknir í íslenskum fræðum þangað. Byggingin verður um 6.500 fermetrar auk um 2.200 fermetra opinnar bílageymslu. Byggingin verður mikil búbót fyrir Árnastofnun og verður m.a. búin sýningarsölum þar sem fólk alls staðar utan úr heimi hefur mikinn áhuga á handritunum, sem eru á heimsminjaskrá UNESCO.
Hús íslenskra fræða mun verða metið eftir BREEAM vistvottunarkerfinu. Með það markmið að byggingin og innviðir hafi sem minnst umhverfisáhrif á líftíma sínum, séu heilsusamlegir fyrir notendur og að viðhaldsþörf verði sem minnst.
Staðan í dag er sú að búið er að steypa botnplötu tjarnar, unnið er að fyllingu að tjarnarkanti og steypa undir forsteyptar einingar í göngubrú í tjörn. Klæðningar utanhúss eru að klárast, hellulögn, kantsteinar, snjóbræðsla og vinna við þakkanta er í fullum gangi. Uppsetning á svalahandriðum hefst svo bráðlega.
Verið er að innrétta á flestöllum hæðum, málningarvinnan er einnig í gangi, gólfvinna er að klárast á annarri og þriðju hæð. Uppsetning á innréttingum, glerskilrúmum, timburklæðningu og hurðum er á góðri leið. Einnig er verið að vinna í lögnum og rafmagni á öllum hæðum.
Staðarstjóri er Ingimundur Þorsteinsson.
Hér fyrir neðan má sjá nýjustu myndir frá verkinu.





