24.04.23

Edda - Hús íslenskra fræða

„Hol­an er horf­in húsið er risið“ sagði for­seti Íslands, Guðni Th. Jó­hann­es­son for­seti Íslands í opn­un­ar­ávarpi við form­lega at­höfn þar sem Hús ís­lensk­unn­ar, hlaut nýtt nafn í dag, það sér íslenska nafn Edda.  

 

Fyrsta skóflustungan að byggingunni var tekin 11. mars 2013 en hlé var á framkvæmdum í nokkur ár. Bygging hússins hófst 30. ágúst 2019 þegar Lilja Dögg Alfreðsdóttir menntamálaráðherra og Guðrún Ingvarsdóttir forstjóri FSRE undirrituðu verksamning við Ístak. Framkvæmdirnar gengu samkvæmt áætlun framan af en í kjölfar heimsfaraldurs og hráefnisþurrðar vegna innrásar í Úkraínu varð nokkur töf. Sem gerði það að verkum að húsinu er skilað örfáum mánuðum á eftir áætlun. 

 

Heildarkostnaður við bygginguna er um 98,9% af áætlun frá 2019 á verðlagi dagsins í dag. Stefnt var að því að flutt yrði í húsið í haust, svo þessi áfangi næst á undan áætlun. 

 

Á verktímanum var lögð rík áhersla á samfélagslega ábyrgð. Sérstök áhersla var á umhverfis-, öryggis- og réttindamál. Niðurstaða þeirrar vinnu er meðal annars að húsið fær umhverfisvottun frá BREEAM stofnuninni og sú gleðilega staðreynd að engin vinnuslys urðu á verktímanum. 

 

Ístak er stoltur byggingaraðili af þessu nýja heimili íslenskrar tungu og við óskum Árnastofnun, Háskóla Íslands og þjóðinni til hamingju með þessa glæsilegu byggingu. 

 

 

 

 

 

Spila myndband