
Í gær var undirritaður samningur á milli ÍSTAKS og NCD í Nuuk um byggingu nýs skóla í Nuuk á Grænlandi.
Við erum sérstaklega stolt og ánægð yfir því að hafa landað þessu verkefni en við val á verktaka var tekið tillit til verðs, útfærslu og rekstrarkostnaðar. Samningurinn hljóðar upp á 615 MDKK og er því eitt af stærstu verkefnum sem Ístak hefur tekið að sér. Einnig er þetta stærsti verksamningur sem bæjarfélagið Nuuk hefur gert.
Hin nýja bygging mun rísa við aðalgötuna í Nuuk, við hlið Hótels Hans Egede, en skammt frá eru einnig aðalverslunarmiðstöð bæjarins og skrifstofur landsstjórnar Grænlands.
Um er að ræða stærstu skólabyggingu landsins, samtals sextán þúsund fermetrar, og mun hún bæði þjóna sem leik- og grunnskóli. Jafnframt verður byggingin íþrótta- og menningarmiðstöð fyrir bæjarbúa á kvöldin og um helgar en íbúarnir fá aðgang að svokölluðu hjartarými byggingarinnar og íþróttasal. Verður þetta því bygging sem mun þjóna mun öllum bæjarbúum, jafnt ungum sem öldnum.
