03.08.22

Kolefnisföngun á Hellisheiði

Við hjá Ístaki erum stolt að vera alverktaki á lofthreinsiveri og viðhaldshúsi fyrir Climeworks sem heitir Mammoth. Við berum ábyrgð á hönnun og framkvæmdum mannvirkjanna sem saman stendur af jarð-, steypu-, uppsetningu stálburðarvirkis og klæðningu húsanna ásamt innanhúsfrágangi. 

Mammoth er annað lofthreinsiver Climeworks sem staðsett er á Íslandi. Það er hannað með getu til að fanga um 36.000 tonn af koltvísýringi á hverju ári þegar það er í fullum rekstri. Carbfix er samstarfsaðili Climworks í Mammoth verkefninu sem mun sjá um varanlega geymslu á koltvísýringi neðanjarðar. Hellisheiðarvirkjun sem rekin er af Orku Náttúrunnar mun útvega Mammoth og Carbfix endurnýjanlega orku til að starfrækja allt lofthreinsi- og geymsluferlið. Gert er ráð fyrir því að framkvæmdir standi í 18-24 mánuði áður en starfsemi getur hafist. Við erum spennt fyrir samstarfinu með Climeworks og að sjá þetta mikilvæga verkefni verða að veruleika.