15.10.21

Mikil ánægja með nýtt íþróttahús á Selfossi

Starfsemi er komin í fullan gang í nýju og fjölnota íþróttahúsi í sveitarfélaginu Árborg en Ístak leggur nú lokahönd á frágang utanhúss. Björn Þórðarson, staðarstjóri Ístaks, segir mikla ánægju ríkja meðal íbúa enda markar húsið þátttaskil í íþróttalífi bæjarins nú þegar bæði knattspyrna og frjálsar íþróttir fá þak yfir höfuðið. Hópar eldri borgara eru nær daglegir gestir og mæta snemma á morgnana til æfinga auk þess sem afreksíþróttabraut Fjölbrautarskóla Suðurlands nýtir nýju aðstöðuna vel. 

 

Ístak hóf framkvæmdir í desember 2019 og voru verklok áætluð í haustbyrjun en örlitlar tafir hafa orðið m.a. vegna Covid-19. Húsið er staðsett á íþróttasvæði UMFS og hýsir hálfan knattspyrnuvöll ásamt aðstöðu til frjálsra íþrótta með 60m tartanhlaupabraut. Áætlaður mannfjöldi í húsið er 350 manns við æfingar að jafnaði og allt að 1.500-3.000 manns á sérstökum viðburðum. Hönnun hússins byggir á frumhönnun Verkís hf. Og Alark arkitekta og er unnið samkvæmt BIM aðferðafræðinni. 

 

Unnið er að frágangi á klæðningu hússins og steinhleðslum sem mikill metnaður er lagður í og eru sérfræðingar í steinhleðslu að störfum við verkið. Sveitarfélagið Árborg er eigandi hússins og nú er leitað eftir tillögum að nöfnum á það. Björn staðarstjóri er ekki í vafa um hvað húsið á heita – Ístakshöllin! 

Nýja og glæsilega fjölnota íþróttahúsið í sveitarfélaginu Árborg setur fallegan svip á íþróttasvæði UMFS og er þegar farið að nýtast íbúum vel.