22.08.24

Nýr hornsteinn lagður í Sögu

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, lögðu í gær nýjan hornstein að Sögu við Hagatorg. Endurbætur í Sögu eru langt komnar og reikna má með að starfsfólk og nemendur Háskóla Íslands flytji inn í húsið síðar í haust. 

 

Framkvæmdir á Sögu hafa staðið yfir frá árinu 2022 en ríkið og Félagsstofnun stúdenta festu kaup á húsnæðinu í lok árs 2021. Þar verður ýmis starfsemi Háskóla Íslands og tengdra aðila, þar á meðal Menntavísindasvið Háskóla Íslands, sem flyst úr Stakkahlíð og Skipholti, og upplýsingatæknisvið skólans auk fleiri starfseininga. Auk þess eru í Sögu 111 nemendaíbúðir á vegum Félagsstofnunar stúdenta en fyrstu nemendurnir fluttu þangað inn í fyrravor. 

 

„Það er afar ánægjulegt að nú hillir undir verklok við endurbætur á Sögu og að húsið verði tekið í notkun á ný. Saga stendur í hjarta háskólasvæðisins og mun verða gríðarleg lyftistöng fyrir Háskóla Íslands og Félagsstofnun stúdenta. Í húsinu verður Menntavísindasvið HÍ, margvísleg önnur háskólastarfsemi og stúdentaíbúðir auk þess sem þar verður fjölbreytt þjónusta sem mun laða að sér gesti og gangandi. Saga á sér glæsta sögu en nú er komið að kaflaskilum og við leggjum ríka áherslu á að færa húsið inn í nýja tíma og að þar verði blómleg og lifandi starfsemi,“ segir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.