04.04.23

Nýr þjónustusamningur við MachineMax

Í síðustu viku undirritaði Ístak þjónustusamning við breska hugbúnaðarfyrirtækið MachineMax.  

 

Hugbúnaðurinn mun hjálpa okkur að halda utan um reksturinn á vélum og búnaði fyrirtæksins. Innleiðing á hugbúnaðinum mun hefjast á næstu vikum.  

 

Með innleiðingunni ætlum við að tryggja betri yfirsýn á þessum eignum, betri nýtingu og minnka skáningavinnu á verkum og bókhaldi.