
Búið er að hleypa umferð á brú Stóru Laxá en verið er að ganga frá lokafrágangi jarðvinnu.
Brúin hefur verið í byggingu frá því haustið 2021 en ýmsar áskoranir komu upp við byggingu brúarinnar, þar má helst nefna veður og vatnafar og efnisútvegun. Fljótlega eftir að framkvæmdir hófust minnti Ísland á sig og ef ekki var flóð á vinnusvæði var óveður.
Eftir krefjandi veðuraðstæður veturinn 2022/2023 var ákveðið að byggja yfir brúardekkið sem gerði gæfumun þegar kom að því að steypa brúardekkið.
Vegurinn var klæddur þriðjudaginn 20. júní og umferð hleypt á á laugardaginn 24. júní. Formleg vígsla brúarinnar er áætluð þann 13. júlí næstkomandi.
Það gleður okkur svo sannarlega að brúin sé klár og almenmingur geti keyrt um nýja tvíbreiða brú á leið sinni yfir Stóru Laxá.