
Vegagerðin og Ístak hafa gengið til verksamninga um breikkun Reykjanesbrautar og voru samningar þess efnis undirritaðir í dag. Samningurinn hljóðar upp á liðlega tvo milljarða króna og er þetta stærsta útboðsverk Vegagerðarinnar í ár. Áætluð verklok eru 1. nóvember 2020.
Vegarkaflinn sem um ræðir er 3.2 km langur og liggur á milli Krísuvíkurgatnamóta og kirkjugarðsins í Hafnarfirði. Hluti af verkinu er breikkun brúar yfir Strandgötu og gerð tveggja göngubrúa yfir Reykjanesbraut ásamt gerð umtalsverðra hljóðvarna. Þetta er því bæði stórt og fjölbreytt verkefni sem þegar er komið í gang með uppsetningu vinnubúða og öðrum undirbúningi.

