
Ístak er eitt þeirra þriggja verktakafyrirtækja sem hafa gert rammasamning við Veitur, ásamt ÍAV og Stéttarfélaginu. Samningurinn var undirritaður 18. desember og byggir á útboði sem hófst í nóvember 2024 um viðhald og þjónustu á veitukerfum.
Útboðið fól í sér nýjar áherslur þar sem lögð var aukin áhersla á heildarlausnir til að auka hagkvæmni, skilvirkni og fyrirsjáanleika, auk þess að bæta þjónustu og gæði til viðskiptavina Veitna. Um er að ræða fyrsta rammasamningsútboð Veitna af þessu umfangi, þar sem viðhald lagna, heimlagnir og nýframkvæmdir eru sameinuð undir einum samningi. Samningurinn tekur til allt að 7,5 ára og inniheldur um 3.600 tilboðsliði.
Karl Andreassen, forstjóri Ístaks, segir að samningurinn endurspegli mikilvægan áfanga í samstarfi fyrirtækisins við Veitur:
„Ístak hefur ávallt lagt áherslu á faglega nálgun við úrlausn verkefna. Kröfur Veitna í rammasamningsútboðinu voru metnaðarfullar hvað snýr að gæðum, öryggismálum, umhverfismálum og faglegri hæfni. Það eru kröfur sem falla vel að stefnu Ístaks og því sérstakt gleðiefni fyrir fyrirtækið að vera eitt þeirra þriggja verktakafyrirtækja sem eru aðilar að samningnum. Við höfum átt í löngu og farsælu samstarfi við Veitur og fyrirrennara þeirra og mun aðild að rammasamningnum treysta það samstarf enn frekar í sessi.“