Líkt og almenningur veit þá olli eldgosið sem hófst þann 8. febrúar umtalsverðum skemmdum á hitaveitukerfi fyrir Suðurnesið. Eldgosinu fylgdi kröftugt hraunflæði sem flæddi yfir Grindavíkurveg og í átt að Svartsengi. Með þeim afleyðingum að heituvatnslögnin sem þjónustar Suðurnesið rofnaði. Þetta gerði það að verkum að um 30.000 íbúar voru án heits vatns og húshitunar og mikill kuldi í kortunum.
Farið var í að tengja nýju lögnina sem fór undir hraun í þeirri von að hún hefði ekki tjónast, gekk vel að tengja og var vatni hleypt á lögn seinni part 9 feb. þegar vatni var hleypt á féll þrýstingur skyndilega og gufustrókur kom upp um hraunið og ljóst að lögnin undir hraunið var skemmd og ekki nothæf.
Á fundi með Almannavörnum var ákveðið að leggja aðra lögn yfir hraunið til að koma vatni á bæjarfélagið. Þar sem hraun var aðeins sólahrings gamalt þurfti að finna leið til að koma lögn fyrir hraunið sem var um 400m breytt í lagnastæði, áætlað var að nota þyrlu landhelgisgæslunar og stóra krana ásamt sérhæfðum búnaði frá Landsnet við að draga lögnina yfir, en á sama tíma að reyna að gera veg að hluta eða öllu leiti yfir hraunið eins fljótt og hægt væri. Vinnan við að ryðja veg yfir nýja hraunið gekk það vel strax að ljóst var að ekki þyrfti að fara í þyrlu æfingar, og í raun hægt að leggja nýju lögnina á hraunveginn. Vinna við undirbúning hófst strax um kvöldið með það markmið að endurheimta heitt vatn fyrir íbúa sem allra fyrst. Fyrst var áætlað að sækja hluta af gömlu Grindarvíkuræðinni en fljótlega fannst hentugt efni á Reykjanesi og var það flutt á staðinn.
Ístak var fengið til að verkefnastýra framkvæmdinni og kom vélsmiðja Ístaks sterkt inn í þá vinnu, Í samstarfi við HS Orku þá voru fengin sex reynslumikil fyrirtæki í slíkri vinnu ásamt þjónustu aðilum við jarðvinnu, hífingar og flutning, sett upp vaktakerfi og strax hafist handa. Í heildina komu um 80 manns að aðgerðinni.
Vel gekk að fylgja skipulagi og gekk gríðarlega vel með þessum hóp, rör var soðið saman í tvær lengjur sem síðan var dregið út á hraunið og yfir það með 50t jarðýtu. Þegar rörið var komið yfir voru tengingar kláraðar. Aðeins liðu 41 klst frá því að ákvörðun var tekin þar til vatni var hleypt á lögn.
Þessi viðbrögð og aðgerðir undirstrika mikilvægi samvinnu og skipulags í neyðaraðstæðum, viljum við hrósa sérstaklega þeim ósérhlífnu fagmönnum sem komu að þessari framkvæmd það var unun að sjá hversu samstilltur hópurinn var.