03.06.22

Undirritun samninga við Félagsstofnun stúdenta vegna Hótel Sögu

Í gær skrifuðu Ístak og Félagsstofnun stúdenta undir tvo samninga. Undirritaður var samningur um utanhússviðgerðir þar sem allt ytra byrði hússins verður lagfært. Skipt um klæðningu á þaki, gluggaskipti á hluta hússins, glerskipti og gluggaviðgerðir, múrviðgerðir, málun o.fl. Áætluð verklok á því verkefni eru í september 2023. Hinn samningurinn var um uppbyggingu á 113 stúdíóíbúðum í norðurálmu hússins. Íbúðirnar verða teknar í notkun fyrri hluta næsta árs. 

 

Í dag eru um 45 manns starfandi á vegum Ístaks í húsinu ef með eru taldir starfsmenn undirverktaka. Reikna má með að þeim fjölgi enn frekar á næstu vikum. 

 

Karl Andreassen, Magnús Orri Einarsson frá Félagsstofnun stúdenta, Gísli H. Guðmundsson og Hermann Guðmundsson
Karl Andreassen og Magnús Orri Einarsson frá Félagsstofnun stúdenta
Hótel Saga
Hótel Saga
Hótel Saga