
Í gær var undirritaður samningur milli Ístaks hf. og MBE eða Miðbæjareigna og Kjalar Fjárfestingarfélags um byggingu fjölbýlishúss fyrir aldraða. Húsið verður við Njarðarvelli 6 í Reykjanesbæ. Byggingin verður 54 íbúðir á fjórum hæðum auk bílakjallara með geymslurýmum. Íbúðir skilast fullbúnar.
Verkið hefst fljótlega en búið er að grafa grunn og fylla undir botnplötu kjallara. Áætluð verklok eru fyrri hluta árs 2024.
