
Ístak og Per Aarsleff AS hafa í samstarfi, gengið til samninga við Betri samgöngur um byggingu Fossvogsbrúar.
Tilboð samstarfsfélaganna reyndist hagstæðara af tveimur gildum tilboðum og nemur samningsfjárhæðin um 7.661 milljónum króna. Samningurinn var undirritaður rafrænt í Fossvogi þar sem framkvæmdir við landfyllingar standa nú yfir. Fyrir hönd Betri samgangna undirritaði Davíð Þorláksson framkvæmdastjóri og fyrir hönd Ístaks Karl Andreassen forstjóri.
Fossvogsbrú er lykilhluti fyrstu lotu Borgarlínunnar og mun bæta samgöngur fyrir Strætó, gangandi og hjólandi. Brúin verður jafnframt mikilvæg tenging í stígakerfi höfuðborgarsvæðisins og stytta ferðatíma á milli helstu vinnu- og þjónustusvæða.
Gert er ráð fyrir að allt að 10.000 manns fari um brúna daglega þegar Borgarlínan verður komin í fulla virkni. Með auknu aðgengi, betri tengingum og léttari umferð mun Fossvogsbrú hafa jákvæð áhrif á samgöngur á öllu höfuðborgarsvæðinu og verða áberandi kennileiti til framtíðar.
Þennan sama dag fagnar Ístak 55 ára afmæli fyrirtækisins og gleðilegt að slík undirskrift hitti á sama dag.