25.09.19

Verksmiðjuhús Algaennovation á Hellisheiði vígt

Nýtt verksmiðjuhús Algaennovation á Hellisheiði var vígt í gær, 24. september, að viðstöddu fjölmenni. Ístak sá um byggingu hússins. 

 

Ohad Bahan, stjórnarformaður Algaennovation, flutti ræðu ásamt Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra, Elliða Vignissyni bæjarstjóri Ölfuss og fleirum.  

 

Verksmiðjan er einstaklega vistvæn og skilur ekki eftir sig kolefnisspor. Þar eru framleiddir örþörungar (Micro-Algae production) og eru þeir seldir til fiskeldis við Miðjarðarhafið - að minnsta kosti fyrst um sinn.

https://istak.viska.io
Verksmiðjuhús Algeannovation á Hellisheiði