
Ístak var á dögunum útnefnt eitt af Framúrskarandi fyrirtækjum ársins 2021. Elfa Björg Aradóttir, fjármálastjóri, og Gísli H. Guðmundsson, deildarstjóri bygginga, tóku við viðurkenningunni við hátíðlega athöfn s.l. fimmtudag fyrir hönd Ístaks.
Ár hvert vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn. Ístak er í hópi 2% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði Creditinfo um árangur í rekstri en þetta er ellefta árið í röð sem Creditinfo tekur saman þennan lista. Ístak var einnig handhafi viðurkenningarinnar árið 2020. Þetta er frábær árangur hjá Ístaki og mikil viðurkenning á vönduðum rekstri fyrirtækisins.
