01.09.22

Við erum framúrskarandi fyrirtæki...aftur!

Ístak hf. var aftur útnefnt eitt af Framúrskarandi fyrirtækjum ársins 2022. Ístak leggur gjarnan áherslu á að vera stöðugt fyrirtæki sem byggir rekstur sinni á sterkum stoðum og stuðla að bættu viðskiptaumhverfi. Einungis 2% fyrirtækja á Íslandi komast á lista CreditInfo yfir framúrskarandi fyrirtæki og því erum við afar stolt að hafa náð þessum áfanga.  

 

Ár hvert vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn. Ístak var einnig handhafi viðurkenningarinnar árið 2020 og árið 2021. Þetta er frábær árangur hjá Ístaki og mikil viðurkenning á vönduðum rekstri fyrirtækisins.