
Miðvikudaginn 10. maí fór fram formleg vígsla stúdentagarða Félagsstofnun stúdenta á Sögu, u.þ.b. ári eftir að uppbygging þeirra hófst. Afhentar hafa verið 106 íbúðir af 111 en fimm íbúðir í tengibyggingu verða afhentar á næstu dögum.
Af þessu tilefni bauð Félagsstofnun stúdenta til veislu í gamla pósthúsinu á Sögu og bauðst gestum að skoða sýningaríbúð og sameiginlegt rými á 6. hæð í kjölfarið. Það var ekki annað að heyra en að mikil ánægja ríkti um útkomuna, fyrir það erum við þakklát. Í máli Guðrúnar Björnsdóttur framkvæmdarstjóra FS kom hún inn á að á síðastliðnum 6 árum hafa FS og Ístak byggt saman samtals 424 leigueiningar fyrir stúdenta.
Þrátt fyrir þennan áfanga þá er nóg framundan á Sögu, bæði viðgerðir á ytra byrði hússins sem og breytingar á lyftum, stigahúsi, Grillinu til að nefna nokkur atriði.