
Brúarvirkjun er rennslisvirkjun sem virkjar efri hluta Tungufljóts í Biskupstungum þar sem hún rennur milli jarðanna Haukadals II og Brúar ofan þjóðvegar að Gullfossi. Umfang Brúarvirkjunar er tiltölulega lítið og staðsetning heppileg með tillit til sjónrænna áhrifa. Uppsett afl virkjunarinnar er 9,9 MW og framleiðir hún um 82,5GWst/ári. Aðalstíflan liggur þvert yfir farveg Tungufljóts rétt ofan við ármót Stóru-Grjótár og þaðan er áin leidd í um 1700 metra löngum aðrennslisgöngum neðanjarðar að stöðvarhúsi.
Loftmynd af Brúarvirkjun