
Ístak reisti viðbyggingar við Gamla Garð fyrir Félagstofnun stúdenta á lóð Háskóla Íslands. Verkefnið fólst í að steypa tvö hús sitthvoru megin við núverandi byggingu og tengja nýju byggingarnar tvær við Gamla Garð með tengibyggingu. Ístak sá um alla stjórnun á vinnustaðnum.
Nýju viðbyggingarnar falla einkar vel að Gamla Garði og umhverfi hans.